Jólasnjór jólasnjór hvítur jólasnjór... en í fkn september?!?!?
Þetta er nú meira helvítis djöfulsins andskotans....*óprenthæf runa blótsyrða*
...... déskotans veðrið hérna á þessu sker!!! Einn daginn er brjálað rok og rigning og næsta dag blanka logn og þurrviðri og svo...wait for it... SNJÓR! þetta væri nokkuð eðlilegt ef það væri nóvember eða e-h en það er bara 15 september for crying out loud! En ég veit samt ekki hvort maður hefur eitthvað efni á því að hvarta, eins og sumarið er búið að vera mikil snelld, ég hef í alvöru aldrei verið með jafn mikla bóndabrúnku...Og bóndabrúnka er ekki eins hot og af er látið!! En öll brúnka er betri en engin brúnka....
En akkúrat í þesum töluðu orðum *lesist: skrifuðu orðum* er ég að hlusta á Oddna Jonnsen að spila í pulló...Ég geri mér fulla grein fyrir því hversu súrealískt þetta kann að hljóma en þetta er satt...Ég sat og var að horfa á friends í herbeginu mínu þegar allt í einu heyrist: "Herrí gömmmlu kattublu görrunu HHHeima!"...ég meina það, ég hélt að Oddni kallin hefði fengið falið hlutverk eða eitthvað þangað til ég fattaði að hann er nottla að spila í tilefni af afmæli Selfoss...
En er það bara ég eða hljómar Árni alltaf eins og afvelta selur? Og hvað er málið með að fá hann á AAALLLLARRR útihátíðir??? Þó það sé hálfgert föðurlandssvik að segja svona...og Árni sé rosa góður og allt það...þá er nú hægt að ofgera öllu....
(eða bara nauðga því í þurra...já einmitt)
En hey! eitt að lokum....Hvað væri Elvis að gera ef hann væri enn á lífi???....Hann væri að öskra og klóra eins og motherfokker í kistulokið :D:D:D:D
Viđskipta(ó)vinir
Halló halló og afsakið hvað það er langt síðan síðast!! En vindum okkur beint að væli dagsins
...Ég er semsagt eins og allur þessi eini lesandi veit líklega að vinna í Byko við timburafgreiðslu. Þetta starf er afar flókið og ekki fyrir neina einfaldninga að vinna við. Enda erum við látnir gangast undir ströng greindarvísitölupróf og herþjálfun áður en við hefjum þarna störf!
Nei reyndar er það ósatt en þetta er samt slatti sem maður þarf að vita um vöruna þarna. Og svo þyrfti maður eiginlega að fara í einhverjar sálfræðiherbúðir áður en maður byrjarði að vinna þarna... Því í svona vinnu kynnist maður hvurslags #/$&)"@ og skítseiði(afsakið orðbragðið) Ísland elur af sér!!!!
Auðvitað eru og verða alltaf einhverjir pirrandi viðskiptavinir sem vita alltaf allt betur en allir aðrir, en það er bara eins og gengur og gerist á svona afgreiðslu stöðum. En sumir eru með alveg óþolandi attitjút gagnvart okkur sem vinnum þarna því við erum bara "strákpollar sem vita ekki neitt um neitt"!! En HEY!!!! Ég veit þó að þú kemur ekki tonni af spítum inn í lokaða kerru sem þolir bara 500 kíló á lyftara! Og ég veit að þessi spíta er EKKI seld í Byko sama þótt þú sért í reikning hér! OOOoog ég veit að líkurnar á því að þú kaupir alveg hundfúið FÚAVARIÐefni eru hverfandi!!
En allt kvartið og öll kveinin eru þó eins og fagur fuglasöngur eða mjálm í litlum kettlingi miðað við (KONUR: ekki lesa lengra) sumar Kjellingarnar sem koma þarna inn
SHEETT!!! Konur sem eiga uppkomna stráka eru verstar því þær hafa bæði áralanga reynslu í að láta unglings stráka bukta sig og beygja fyrir sér og´kunna að láta það sterklega í ljós að ef maður er með eitthvað rugl þá geti þær sent mann grenjandi heim eins og skot!! Þett'er satt!!! Og svo vita þær AAAAALLLLLTTTT um AAAAALLLLLTTTT!!!!
"HVA? skjelliru þessu ekki bara þessu garðskýli og þessari rólu inn í þessa lokuðu kerru?" "HA?? þarftu lyftara?? náðu þá í hann!!" "Ekki skemma sófan drengur!!!"
"Hann Jói minn sagði að Byko væri með þessar spítur" "HA?? ertu að segja að þetta sé ekki selt hér?? En það hlýtur bara að vera því Jói keypti þetta hér fyrir 30 árum" "VÍST var byko til fyrir 30 árum!!!" "Þá kann forstjórinn bara ekki að telja því ég veit að Byko var til fyrir meira en 20 árum!!"
Þetta er svaðalegt og þær róast yfirleitt ekki fyrr en þær fara og ná í verslunarstjórann og hann segir þeim NÁKVÆMLEGA þeð sama og ég var að klára að segja!! Svo eru líka kallarnir sem byðja um þessa sðítu og er voða kokhraustir þangað til konan segir honum að spíturnar sem eru nú þegar í bústaðnum séu mikilu þynnri... og kallinn samþykkir bara allt saman þrátt fyrir ströng fyrirmæli frá smiðnum sem er að byggja fyrir þau!
En svona er þetta og verður líklega alltaf því enginn þorir að segja neitt nema kannski.. bakvið einhvern...tölvu...skjá...hóst...
ha? ég??uuu neeeeiii....
P.S. ÁFRAM KONUR!!!![]()
Sól-Skynsemi?
Jæja svona áður en ég eys úr mér reiðinni í einhverju ritgerðarbloggi þá ætla ég að koma með smá öppdeit:
* Eftir margar bænir til hinna ýmsu Guða og náttúrufyrirbrigða er loksins komin sól!!
og nú er bara að einbeita sér að því að losna við ansvítans rokið hérna!
* Ég er að fara til Noregs þann fimmtánda júní og er að missa mig í allskonar mismunandi form af tilhlökkun(hvernig sem það er hægt)
* Páll Óskar er hommi.... já ég veit... það er soldið sjokk....
Ennnnnnn að alvarlegri málum.... Eftir þetta hræðilega veður sem búið er að standa yfir í að því virðist óendanlega langan tíma(!!!), hef ég ákveðið að senda veðurguðinum eitt gott hökk beint í punginn í formi hugskeytis. Og ég hvet alla til að gera slíkt hið sama!
Svo fór ég allt í einu um daginn að pæla í þessu tvíkynhneigðar-æði sem virðist grípa stöku manneskju. Ég hef nú yfirleitt haldið því fram að tvíkynhneigð væri annaðhvort annað orð yfir skápa-homma/lessur eða þá bara einfaldlega pjúra athyglissýki. En svo um daginn datt ég niður á nýtt sjónarmið. (Það var svolítið vont að detta svona en það er alltílagi núna.
) Eru tvíkynhneigðir ekki bara svona skynsamt fólk?!?!?!
..... Nei í alvöru, pælið í því, ef maður fer á skemmtistað þar sem eru 100 manns (þægileg tala) að skemmta sér(helmingur eru kallar helmingur konur)... (við gefum okkur að allir séu einhleypir.) Oft er miðað við að ein af hverjum tíu manneskjum séu samkynhneigðir og segjum sem svo að einn af hverjum 10 séu bæ.
Nú áttu strax smá séns í 50 manns þarna inni plús þessa sam- og tvíkynhneigðu!!! = 70 manns!!!
Þess vegna spyr ég... er hákarl í alvöru góður eða er fólk bara svona snobbað??
JAHH nú er ég lessa!
Allir að rétta upp hendi sem eru orðnir þreyttir á þessu déskotans veðri hérna á Íslandi!!!
Ákvað gamla ríkistjórnin að gera smá skandal svona úrþví að þeir eru hvorteð er að hætta og breyta árstíða röðinni og láta koma vor og síðan vetur??
Annars er þetta kannski ekki almennilegur vetur. Þetta er meira svona vemar(vetur/sumar) því það er svo fljótt að hætta að snjóa og byrja að rigna og svo allt í einu komið eitthvert Mæjorka veður! Ég er alvarlega að pæla í að kæra veðurstofuna í von um betra veður!! Og ég vil nú að allir spyrji sig að þessu: Er Ísland eitthvað farsældarfrón??
FJÖLMENNUM Í KRÖFUGÖNGU Á MORGUN!!! KREFJUMST ÞESS AÐ VIÐ FÁUM SMÁ SUMAR!!!
En að öðrum skemmtilegri(??) málefnum:
Nú eru prófin nýyfirstaðin og vorum við kölluð á prófsýningu í skólanum. Fyrir ykkur sem ekki vita, þá eru prófsýningar svona sýningar á prófum. Í mínum skóla(FSu) fer hún fram þannig að þeir sem vilja geta mætt og skoðað próf. Fyrst gengur maður inn í svona sal þar sem maður getur séð prófin sín. Síðan kemur maður inn í annan sal þar sem er búið að prenta út prófin með lægstu einkunnunum og hengja upp um alla veggi þar inni okkur hinum til gamans. Og síðan er eigendum þessara prófa stillt upp á svið og þar geta aðrir hlegið að þeim og kastað í þau allskyns lausahlutum(hnífar og kyndlar eru bannaðir af gefnu tilefni). Síðan í næsta sal er svona "Hall of fame" þar sem okkur sem dúxuðu ekki gefst það tækifæri að heiðra dúxana og tilbiðja þau sem guði.......
(Ég veit nú alveg að enginn trúir þessari vitleysu því að ef einhver er svo vitlaus þá hlýtur viðkomandi að vera með greindarvísitölu á við moldvörpu og kann því líklega ekki að lesa.)
Nei við fáum nú bara að sjá einkunnir og tjekka á því hvort við getum ekki örugglega kært kennarana okkar sem hafa gert okkur lífið leitt síðastliðinn vetur.
En allavega!!! Þá féll ég ekki í neinu þrátt fyrir mikið annríki í vetur(leiklist o.fl)!!!!
Eruð þið ekki yfir ykkur ánægð??? Ég veit að ég er það!!! :D:D:D
P.S Ég finn enga síðu sem ég get kommentað á hjá ykkur úr leikritinu þannig að ég verð bara að skrifa þetta á þessa síðu og vona að þið kíkið einhvern tíma á það!: Ég hlakka mega til þess að hafa ríjúnjön í sumar og hitta alla leikfélagana!!! En er eitthvað vitað hvenær það er??? Og mikið rétt Kristey, Ísí písi lemon skvísí lagar allt!!!
En ég nenni þessu ekki lengur... bæjó!...... kvitta:P
Júróvisjón fýla
sjjjjeettt er ég ósáttur með Evrópu núna!! Er Ísland landfræðilega séð ekki að stórum hluta til partur af Ameríku???
Eins og allir vita ef þeir eru ekki moldvörpur eða eitthvað þaðanaf verra, er Eurovision ný staðið yfir. Þessi keppni er nú hugsuð sem svona nokkurskonar þjappa og vopnahlé milli okkar evrópumanna en er það raunin? Ég veit það ekki.... Er það ekki rétt skilið að við sem teljumst til vestur-Evrópuþjóða erum búin að lýsa yfir opinberri fýlu útí Austurhlutann? Og að flestir á Íslandi og þótt víðar væri leitað eru á því máli að þetta sé bara einhver mafíustarfsemi þarna hinum meginn? Tja... ég neita því ekki að það er helvíti grunsamlegt að 10 austantjalds þjóðir komist í 10 efstu sætin? En erum við eitthvað betri?? Við snérum bara vörn í sókn og fárum að ráðum Eika kallsins og kusum nánast bara frændur okkar.
Mér var nú kennt að leggjast aldrei jafn lágt og andstæðingurinn og vera þar með meiri maður! En kannski er alltí lagi að vera soldið barnalegur stundum.
En er kannski málið bara að úrslitin eru alltof snemma eftir undankeppnina?? Þeir sem tapa eru reknir með harðri hendi af vígvellum, ennþá helsárir eftir illa útreið í þessari undankeppni og eru strax sendir í að kjósa einn sigurvegara af nokkrum þjóðum sem eiga allar þátt í því að það er ekki verið að kjósa okkur! Kannski erum við engan vegin dómbær á tónlist í þessu ástandi.
En ég þar sem ég er Íslendingur er ég samt sammála þessum samsæriskenningum. Við erum ekkert légleg!!! Þetta er bara helv**** mafíósa starfsemi!!!
Ég er samt fúlastur yfir því að það voru bara 2 góð lög í keppninni, Ungverjaland og Ísland(ofcourse), og hvorugt landið vann!!!
SKANDALL!!!!!
Mormónar hvađ?
Er ég sá eini sem hefur lent í þessum mormónum eða?? Þeir eru búnir að koma heim til mín tvisvar, hringja einu sinni og stoppa mig 5 sinnum! Jæja alla vega. Þegar ég var að koma úr tónlistarskólanum áðan þá sá ég 3 menn í svörtum jakkafötum, í hvítum skyrtum og með svört bindi og í þykkum svörtum úlpum yfir og, svona til að toppa þetta allt, með skólatöskur á bakinu! Sem sagt, mormónar. Ég náttlega reyndi að sýnast ótrúlega upptekinn í framan, alveg með svip og allt, og þegar ég var að nálgast þá og næstum búinn að taka upp símann þá allt í einu setti einn þeirra upp svona feik bros sem fegurðar drottningar yrðu verulega stoltar af, og sagði með ekta bandaríkjahreim: Good day sir!, my name is Dickinson, can I talk to you about god?
(Það er ekkert verið að sóa tímanum og fara fínt í hlutina?)
Ég var nú næstum búinn að segja No you can't en hún móðir mín ól mig svo vel upp að ég vældi bara eitthvað um að hinir tveir hefðu nú komið heim bara um daginn(sem var bæ ðe vei alveg satt) og vonaði að þá hinir gætu sagt að ég hefði ekki viljað tala við þá heldur. En nei! Herra Dickinson ætlaði sko greinilega að komast í eitthvað heiðurssæti upp í himnaríki með því að gera sem flesta að mormónum. Alla vega, þá spurði hann mig hvort ég væri sannur kristinn maður og biði bænir og færi í kirkju og svona. Ég sagði þeim að ég gerði það nú ekki og vonaði að þeir fengu einhverja vitrun fá guði um að ég væri bara trúleysingi og færi hvort eð er til helvítis og það tæki því ekki að sóa kröftum sínum í mig.
En NEI! Hann Dickinson kallinn þráttaðist við og spurði hvort að ég tryði á guð. (Óskammfælnin maður :P nah, segi bara svona) Tja, sagði ég, ég trúi að það sé eitthvað sem setndur fyrir hið góða, ef það er það sem þið meinið. Þá sagði vinurinn hafa sannanir fyrir því að guð væri til og hvort ég væri til í að sjá(finna?) þær. Þá sá ég nú fram á að þurfa að gera eitthvað róttækt til að sleppa frá þessu guðstali og spurði hver afstaða þeirra væri gagnvart öðrum trúarbrögðum. Þá segir Dick. að það sé alveg hægt að neita því að guð sé til, þó það sé ekki rétt, alveg eins og hann geti neitað því að Ástralía sé til, þó það sé í raun ekki rétt. (þarna var ég næstum sprunginn úr hlátri). Þá spurði ég hvort samkynhneigðir kæmust til himna. Hvað haldiði að kallinn hafi sagt?? "Ha? Jú samkynhneigðir komast til himna svo lengi sem þeir stunda ekki samkynhneigð". (Hvað eiga hommar að gera? Halda í sér eða??(hvernig fermaður að því að stunda ekki samkynhneigð ef maður er samkynhneigður? er samkynhneigð ekki bara tilfinning? hvernig stundar maður tilfinningar?))(ég vil mynna á að feik brosið var alltaf fast á vörunum á honum).
Þarna varð ég nú eiginlega bara reiður og sagði: Eiga samkynhneigðir bara að vera skírlífir?. Þá sagði Dick. að það væri hægt að bæla allar líkamlegar þarfir eins og greddu(hann orðaði það nú ekki svona rosalega dónalega :P). Og sagði jafnframt(þetta verður á ensku þ´ví það er bara svo fyndið): "I, for example, have never had sex, I wan't to but I don't". NEEEEEEIIII!!!!SVONA SEGIR MAÐUR EKKI!!!! Ekki þegar maður er greinilega að nálgast þrítugt og er á Íslandi að tala við íslenskan ungling og vill láta taka sig alvarlega!!! hahahahahahaha kjánaprik!!! Meira að segja hinir mormónarnir glottu út í annað, greinilega örlítið lífsreyndari en félagi þeirra. Síðan kom smá hik á kallinn og svo spurði hann hvort ég væri nokkuð samkynhneigður, ég sagði nú bara að ég væri það ekki og tæki samkynhneigð bara svona sem dæmi um hvernig skoðanir mormóna stönguðust á við mínar. Ég var allavega orðinn verulega reiður þarna og gat ekki hlegið akkúrat þarna. Nema kannski að kaldhæðninni í nafninu hans Dickinson, (lesist: Dick inn son!(sem setning)). En ég var eins og áður sagði nett pirraður á skírlífs drengnum og sagðist ekki trúa því að guð fordæmi einn né neinn vegna skoðanna sem hann hefur hvað þá einhvers sem maður ræður ekkert við og hefur ekkert myndað sér með aldrinum heldur fæðist bara þannig(Þarna hjaðnaði feik brosið´) . Þá fór Mr. 30 year old virgin eitthvað að babbla um að guð hafi skapað Adam og evu en ekki Adam og Einar(eða Earl eins og hann sagði).
Þá var mér nóg boðið og sagði þeim að ég vildi ekki trúa þessu hvort sem það væri rétt eða ekki og gerði mig tilbúinn að labba í burtu en þá greip einn þeirra í hendina á mér og þakkaði mér fyrir spjallið og var bara nokkuð kammó og rétti mér Sáluhjálparbækling(HAHAHAHHAHAHAHA). Dickinson setti upp brosið á ný og þeir héldu sína leið líklega ekkert í skýjunum yfir að hafa ekki náð að gera mig að mormóna þrátt fyrir þrálátar tilraunir.
Annars var nú ekkert meira í bili
Chao!
Blogg? ég? ha? ertu viss?
Já þið heyrðuð/lásuð rétt!!! Ný síða! Og nú ætla ég að reyna að standa mig í skriftum hérna meginn!!
vinter Uppdeit:
Tjah... hvar skal byrja? Ég veit!! byrjum á byrjununni!! það hefur oftast virkað ágætlega...
Ég er búinn að vera á fullu í leiklist síðan í Janúar og settum við leikfélagarnir upp spunaverk... við fórum upp á svið og áttum vera rosa snögg að finna einhvern verk til að leika... ég var með hausverk, verk í úlnliðnum og í þriðju tá frá hægri á vinstri fæti.....
hahaha hahaha haha aaaaah.... *hóst*.... nei djók... :/
við leikfélagarnir með örlítilli hjálp frá leikstjóra og aðstoðar leikstjóra sumsé sömdum verk sem kallast því ægi fagra nafni
Sambýlið - Sönn Íslensk sápa og fengum svona líka glimrandi dóma!!! Þetta verk fjallaði ekki um þroskaheft-misþroska eða annað ólukku fólk eins og titillinn gefur máske til kynna heldur fjallaði það um þrjá krakka á tvítugs aldri sem leigja saman íbúð í eitt ár. Þetta ár þeirra saman var afar afdrifaríkt og fléttaðist inn í þetta drama, cómedía og eiginlega flestar tegundir leiklistar. Ég lék blómskreytinn og atvinnu homman/tískuslysið Gústa sem bjó á móti sambýlingunum með hækjunni sinni Möggu og var svaðlega skotinn í öðrum stráknum þarna á móti. Eins og áður sagði fengum við glimrandi dóma og er ég rétt að jafna mig á sælu vímunni... (fráhvörfin eru suddaleg!:p) En fórnirnar sem maður færir eru líka all rosa legar!Til dæmis var ég látinn lita á mér hárið fjólublátt með bleikum strípum!! (en það er búið að gera það nokkuð eðlilegt aftur)
Þetta er í rauninni um það bil allt sem gerst hefur í vetur... Hey jú ég víst í prófum, og það ekkert smá mikið! Heil NÍU stykki!!! og svo er ég að byrja í BYKO á föstudaginn
That's all folks!
p.s.: Muna að kvitta
